Gæludýr.is

Akureyringar fagna þjóðhátíð í Lystigarðinum

Akureyringar fagna þjóðhátíð í Lystigarðinum

Hátíðarhöld 17. júní verða með ofurlítið öðru sniði en verið hefur síðustu árin á Akureyri. Ákveðið var að hafa alla dagskrána í og við Lystigarðinn og er fyrst og fremst horft til þess að bjóða upp á góða dagskrá fyrir alla fjölskylduna yfir daginn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

Nú er orðin hefð fyrir því að blómabíllinn keyri um bæinn áður en formleg dagskrá hefst og verður Kristinn Örn Jónsson, Tinni, á ferðinni milli kl. 11 og 12 á fallega fornbílnum sínum. Hann leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11 og endar ferðina við Lystigarðinn.

Skrúðgangan leggur af stað frá gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og formeg dagskrá í Lystigarðinum hefst kl. 13. Að lokinni hátíðardagskrá hefst fjölskylduskemmtun í vestari hluta garðsins og á hinni svokölluðu MA-flöt fyrir ofan Lystigarðinn. 

Allt um dagskrá dagsins er að finna HÉR.

Fólk er hvatt til að nota umhverfisvænan ferðamáta til að komast til og frá Lystigarðinum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó