Akureyri verður suðupottur gjörningalistar á A!

Alþjóðlega gjörningahátíðin A! sem fram fer 8.-10. október verður haldin á Akureyri í tólfta sinn og býður að venju upp á fjölbreytta dagskrá þar sem innlendir og erlendir listamenn leiða saman gjörningalist, dans, myndlist, tónlist og leikhús. Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar.
A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð og samstarfsverkefni ólíkra menningarstofnana og félaga á Akureyri. Frá upphafi hefur hátíðin lagt áherslu á gjörningalist í allri sinni fjölbreytni og er hún ein fárra hátíða á Íslandi sem helguð er listforminu.
Á hverju ári breytir A! Akureyri í suðupott gjörningalistar þar sem verk spretta upp víðs vegar um bæinn. Viðburðir fara fram í ólíkum menningarhúsum og rýmum og þátttakendur eru jafnt ungir og upprennandi listamenn sem og reyndir og vel þekktir listamenn frá Íslandi og erlendis frá.
Dagskrá ársins endurspeglar vel þá breidd sem einkennir gjörningalistina. Þar má meðal annars finna verk sem fjalla um tengsl manns og náttúru, tíma og bið, ást og leyndarmál, auk verka þar sem tónlist, hreyfing, líkaminn og sjálft sýningarrýmið verða að efniviði listamannanna.
Meðal erlendra gesta hátíðarinnar í ár er Diana Burkot, meðlimur rússneska listahópsins Pussy Riot. Burkot flytur Sweat & Blood, lifandi tónlistar-gjörning þar sem rafræn tónlist, rödd, líkamlegur gjörningur og sjónrænir þættir renna saman.
Einnig tekur japanski listahópurinn Yubusha þátt í hátíðinni með nýjum Butoh-gjörningi sem þróaður er á Íslandi. Í verkinu kannar hópurinn tengsl fólks við land, steina og andlega heima og leiðir saman japanska hefð og íslenska þjóðtrú. Rannsókn hópsins hér á landi byggir meðal annars á sögum og trúarhugmyndum sem tengjast steinum og landslagi á Akureyri og í nágrenni.
Gjörningalist hefur á undanförnum áratugum færst frá jaðri samtímalistarinnar nær miðju hennar og innan listformsins rúmast ótal aðferðir og nálganir. A! skapar vettvang fyrir þessa fjölbreytni og gefur gestum kost á að kynnast gjörningalist í ólíkum myndum og jafnframt upplifa bæinn og rými hans með nýjum hætti.
A! er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Listnámsbrautar VMA og Myndlistarfélagsins á Akureyri.
Frítt er inn á alla viðburði.
Verkefnisstjóri: Sara Bjarnason
Tengdar greinar
Uppfært: 5. október 2026





