Handboltinn heldur áfram að rúlla í kvöld en í KA-heimilinu taka Akureyringar á móti firnasterku liði Aftureldingar.
Strákarnir hans Sverre Jakobsson í Akureyrarliðinu hafa farið heldur illa af stað í deildinni en þeir sitja á botni deildarinnar, án stiga.
Gestirnir frá Mosfellsbæ koma hins vegar fullir sjálfstrausts til leiks eftir að hafa unnið síðustu tvo leiki sína. Fyrr í vikunni unnu þeir góðan sigur á Fram og í 2. umferð komu þeir öllum óvart og lögðu Íslandsmeistara Hauka í Hafnarfirði. Það er því ljóst að erfitt verkefni bíður Akureyringa.
Eins og áður segir fer leikurinn fram í KA heimilinu en hann hefst klukkan 19:00 og hvetjum við alla til að mæta og styðja sína menn.
Athygli er vakin á því að leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á netinu en þá útsendingu má nálgast á heimasiðu félagsins, www.akureyri-hand.is.
UMMÆLI