Akureyri í myndbandi Anthropic

Eitt af þeim gervigreindarlíkönum sem hefur vakið hvað mesta athygli vestanhafs er Claude, þróað af tæknifyrirtækinu Anthropic. Fyrirtækið sendi framleiðsluteymi alla leið til Íslands síðastliðið vor þar sem tilgangurinn var að gera myndband sem varpar ljósi á viðhorf Íslendinga til gervigreindar. Myndbandið ber heitið -How Icelanders are thinking about AI.
Tökur fóru fram víða, meðal annars á Akureyri þar sem leitað var eftir fjölbreyttum sjónarmiðum úr samfélaginu. Þar var rætt við foreldri til að fá sjónarhorn fjölskyldufólks, auk þess sem litið var við í Háskólanum á Akureyri og myndefni skotið í Akureyrarkirkju. Anthropic heimsótti einnig VMA þar sem rætt var við Friðrik Óla Atlason, kennara í rafiðngreinum, og Sigfús Arnar Sveinbjörnsson, nemanda í rafvirkjun.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










