Akureyri er „City of Joy“ um versló
Eftir María Hjelm·

Akureyrski rapparinn Saint Pete hefur gefið út nýtt lag, City of Joy, með útvarpsþríeykinu FM95BLÖ. Lagið er gefið út í tilefni af hátíðinni Einni með Öllu sem er haldin á Akureyri um verslunarmannahelgina. FM95BLÖ heldur tónleika ásamt fremsta tónlistarfólki landsins á Akureyrarvelli laugardagskvöldið 1. ágúst klukkan 20.
„Hvet ykkur til að hlusta, hækka vel, því að það verður mjög hátt í græjunum á Akureyri, stadium gigg FM95BLÖ og við erum að ofpeppast, drengirnir,“ segir Auðunn Blöndal um lagið á Instagram-síðu sinni.
Hér má hlusta á lagið City of Joy.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










