Akureyrarslagur í Olísdeildinni
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Í kvöld klukkan 19:00 mætast KA og Þór í KA-heimilinu í fyrsta Akureyrarslag vetrarins í Olísdeild karla í handbolta. Liðin eru nú að hefja þriðju umferð deildarinnar þar sem KA er með fjögur stig eftir tvo sigra en Þór er með tvö stig. Búist er við fullu húsi og mikilli stemningu á leiknum, líkt og á síðasta tímabili þar sem KA vann fyrri viðureignina en jafntefli varð í þeirri síðari.
Vegna mikillar aðsóknar hvetur KA áhorfendur til að mæta snemma og skilja bílinn eftir heima ef kostur er, reynt verður að fjölga bílastæðum í nærliggjandi götum auk þess sem hægt er að leggja við Lundarskóla. Mjög fáir miðar eru eftir á leikinn en Þórsarar fengu þó viðbótarmiða sem seldir verða í Höllinni í dag.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. september 2026










