MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Akureyrarklíníkin tekur þátt í stóru evrópsku rannsóknaverkefni um ME

Eftir Ingólfur Stefánsson·
sakk
kaffid.is

Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala er einn af þátttakendum í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindarannsóknir á ME og sameinar vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk og fulltrúa sjúklinga frá meira en tuttugu rannsóknastofnunum í Evrópu og Kanada. Greint er frá á vef Sjúkrahússins á Akureyri.

Markmið verkefnisins er að auka skilning á líffræðilegum orsökum ME, þróa áreiðanleg lífmerki sem styðja við greiningu sjúkdómsins og leggja grunn að markvissari meðferð í framtíðinni. Með samræmdum rannsóknaraðferðum og umfangsmiklum gagnasöfnum verður unnið að því að greina undirhópa sjúklinga og skilja betur þá líffræðilegu ferla sem liggja að baki sjúkdómnum.

Það er er Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í ofnæmis- og ónæmislækningum, sem leiðir verkefnið fyrir hönd Landspítala í samstarfi við Friðbjörn Sigurðsson hjá Akureyrarklíníkinni. Stefnt verður að því að fá 120 sjúklinga með ME og 30 heilbrigða einstaklinga á Íslandi til að taka þátt.

Nánar á sak.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026