Akureyrarbær tekur þátt í rafrænu losunarbókhaldi

Akureyrarbær hefur samþykkt að taka þátt í Kolku, rafrænu og sjálfvirku losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga innan Norðurlands eystra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.
Þar segir að verkefnið sé hluti af gildandi sóknaráætlun og loftslagsstefnu landshlutans og að það hafi verið samþykkt sem áhersluverkefni af stjórn SSNE til eins árs. Markmiðið er að innleiða sjálfvirka lausn fyrir losunarbókhald frá rekstri sveitarfélaga á svæðinu.
„Kolka er rafrænt kolefnismælaborð með sóunargreiningum og sjálfvirkum skýrslugerðum. Lausnin er þróuð af Advania í samstarfi við Laufið og mun auðvelda sveitarfélögum að halda utan um losun frá rekstri sínum. Með sjálfvirkninni verður umfangsmikil vinna við flokkun og útreikninga á kolefnisspori minni,“ segir í tilkynningu.
Verkefnið er fjármagnað af Sóknaráætlun Norðurlands eystra til eins árs og því er ekki gert ráð fyrir beinum kostnaði fyrir sveitarfélögin á því tímabili. Áður en verkefnistímanum lýkur verður árangur þess metinn og í kjölfarið tekin ákvörðun um framhald í samráði við sveitarfélögin.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










