Akureyrarbær samþykkir fjárhagsáætlun 2025 til 2028 – Reiknað með rekstrarafgangi

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árin 2025-2028 var samþykkt í bæjarstjórn í gær, þriðjudaginn 3. desember. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar árið 2025 er áætluð jákvæð um tæplega 1,5 milljarð króna. Gert er ráð fyrir stighækkandi rekstrarafgangi á árunum 2026-2028 og að niðurstaðan árið 2028 verði tæplega 2,1 milljarður. Eignir eru áætlaðar samtals 73,7 milljarðar króna í árslok. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri segist þar vera ánægð með áætlunina: „Við erum stolt af þeirri vinnu sem hefur farið fram við gerð hennar. Þetta er vel unnin og skýr fjárhagsætlun sem sýnir glögglega fram á traustan fjárhag bæjarins. Þannig að við horfum björtum augum til framtíðar.“

Nánar er farið yfir úthlutun fjármagns í tilkynningu Akureyrarbæjar sem hægt er að lesa með því að smella hér. Fjárhagsáætlunina sjálfa er hægt að skoða með því að smella hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!