Foreldrar og forráðamenn leikskólabarna á Tröllaborg voru boðaðir á fund í Giljaskóla í gærkvöldi vegna meintrar óviðeigandi framkomu starfsmanns leikskólans Tröllaborga gagnvart barni. Akureyrarbær sendi í dag frá sér fréttatilkynningu vegna málsins sem má lesa neðst í greininni.
Umrætt atvik átti sér stað árið 2024 og var starfsmanni vikið úr starfi. Umræða kom upp um málið í Facebook-hópnum Mæðratips fyrir skömmu þar sem atvikið var rætt í kjölfar röð mála á vegna meintra kynferðisbrota á leikskólum á Suðurlandi.
Málið var fellt niður af lögreglu á sínum tíma en Akureyrarbær hefur óskað eftir því að málið verði tekið upp að nýju þar sem upplýsingar sem að sveitarfélagið hafði undir höndunum á sínum tíma stangast á við upplýsingar sem eru í umræðunni í dag.
Kaffið.is hefur rætt við foreldra sem boðaðir voru á fundinn sem vilja halda nafnleynd vegna viðkvæmni málsins. Foreldrar sem höfðu samband við Kaffið.is segjast fyrst hafa heyrt af málinu þegar umræða skapaðist í Facebook-hópnum Mæðratips síðastliðið haust.
„Foreldrar hefðu átt að fá upplýsingar um málið mun fyrr og ég tala nú ekki um þar sem fjöldi foreldra hafði samband við leikskólann á þessum tíma með áhyggjur af vanlíðan barna sinna. Barnavernd sendir okkur nú einu og hálfu ári síðar aðferðir sem eiga að hjálpa manni að tala við börnin sín um svona viðkvæm mál, það hefði verið gott að fá það um leið,“ segir eitt foreldri.
Þeir foreldrar sem Kaffið hefur rætt við hafa lýst yfir mikilli óánægju með fundinn sem haldin var vegna málsins í Giljaskóla í gær og segjast hafa yfirgefið fundinn með fleiri spurningar en svör.
Á fundinum voru fulltrúi lögreglu, bæjarstjóri, bæjarlögmaður og fulltrúar frá fræðslu- og lýðheilsusviði Akureyrarbæjar, skólasálfræðingur, stjórnendur Tröllaborga og forstöðumaður barnaverndar. Þá var á fundinum sérfræðingur á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar sem gaf leiðbeiningar til foreldra um hvernig væri best að ræða við börn um erfið málefni. Sveitarfélaginu var ekki heimilt að ræða um málsatvik vegna trúnaðarskyldu og rannsóknarhagsmuna.
„Það átti alveg að losna við það að taka ábyrgð á því sem átti sér stað í alvörunni og adressa fílinn í herberginu; að það hafi ekki hvarflað að þeim að halda þennan fund miklu fyrr. Það var enginn þarna að taka ábyrgð á þessu, biðjast afsökunar eða segja frá því hvernig var farið að eða hvort og hvernig öryggi var tryggt fyrir börnin okkar,“ segir eitt foreldranna í samtali við Kaffið.is.
„Við fengum engin svör, enginn gat svarað neinu. Mér líður eins og allt traust til starfsfólksins sem er búið að vita af þessu allan þennan tíma, allt traust er farið,“ segir annað foreldri.
Þá hafa foreldrar lýst yfir óánægju sinni yfir því hve lengi umræddur starfsmaður starfaði á skólanum eftir að Barnavernd fær ábendingu en samkvæmt upplýsingum sem foreldrarnir hafa starfaði starfsmaðurinn við leikskólann í 4 vikur eftir að Barnavernd fékk ábendingu um málið.
„Maður vildi fá svör við spurningum eins og afhverju þessi einstaklingur var að vinna í rúmlega 4 vikur eftir að Barnavernd vissi að hann var grunaður um brot gagnvart barni, brot sem fékk hraða meðferð hjá Barnavernd þannig að tekið var viðtal við barnið og málið komið til lögreglu. Maðurinn var að vinna á leiksskóla á meðan og leiksskólinn upplýstur að þeirra sögn í lok september sem að miðað við fundinn í gær hljómar ekki satt. Leikskólakennar og starfsfólk leikskólans ekki upplýst. Þetta er bara háalvarlegt mál. Svörin eru svo að það eru ekki til almennilegir verkferlar. Við hefðum aldrei fengið að vita þetta ef þetta hefði ekki farið af stað á samfelagsmiðlum.“
Akureyrarbær sendi í dag frá sér fréttatilkynningu vegna málsins í kjölfar fyrirspurnar Kaffið.is. Í tilkynningunni kemur fram að ákveðið hafi verið að fara yfir verklag bæjarins og innri ferla vegna málsins og beðist er afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Akureyrarbær vill taka það skýrt fram að hann ber fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til.
Tilkynningu bæjarins má lesa í heild sinni hér að neðan
Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla.
Ýmislegt bendir til þess að upplýsingaflæði hafi á þeim tíma ekki verið fullnægjandi. Markmið Akureyrarbæjar er að tryggja með afgerandi hætti að sambærileg mál séu í framtíðinni meðhöndluð á eins skýran og faglegan hátt og unnt er.
Mánudaginn 23. mars voru haldnir fundir með foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Tröllaborgum. Fundina sátu fulltrúar bæjarins, lögreglu, barnaverndar, stjórnendur skólans og sérfræðingur um hagnýtar leiðbeiningar til barna og foreldra ef upp kemur grunur um brot á barni.
Tilgangur fundarins var að veita foreldrum upplýsingar um málið, auk þess að bjóða upp á ráðgjöf um hvernig ræða megi erfið mál við börn. Foreldrum var jafnframt leiðbeint um hvert þeir geti leitað hafi þeir áhyggjur af velferð barna sinna og hvernig koma megi á framfæri ábendingum til lögreglu.
Sveitarfélagið mun óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til skoðunar reynist forsendur fyrir því, þannig að óvissa um atvik og niðurstöður verði sem minnst fyrir foreldra og starfsfólk.
Akureyrarbær biðst afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Á næstu vikum verður verklag bæjarins varðandi innri ferla og skipulag rýnt og endurbætt. Markmiðið er að bæta upplýsingaflæði, verklag og viðbrögð, og skerpa á hlutverkaskiptingu í viðkvæmum málum. Hlutaðeigandi aðilar, þar á meðal starfsfólk og foreldrar, munu koma að þeirri vinnu auk þess sem leitað verður ráðgjafar sérfræðinga eftir þörfum. Einnig er lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum.
Öryggi og velferð allra barna skal ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt er að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir.
Akureyrarbær vill taka það skýrt fram að hann ber fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til.










