Akureyrarbær hefur sent frá sér tilkynningu á vef bæjarins þar sem íbúar eru hvattir til þess að taka höndum saman við að hreinsa bæinn eftir veturinn.
Plokkdagurinn sem var haldinn 30. apríl síðastliðinn tókst mjög vel samkvæmt tilkynningunni. Vorhreinsun sveitarfélagsins er einnig í fullum gangi og eru götur sópaðar af miklum krafti.
„Nú höldum við áfram og er næsta skref að snyrta garða og gróður í kringum heimili og vinnustaði og taka þannig á móti sumrinu með brosi á vör,“ segir í tilkynningu bæjarins.
Gámar undir garðaúrgang hafa verið settir á eftirfarandi staði og verða þar til 19. maí:
- Bugðusíðu við leiksvæði
- Aðalstræti sunnan Duggufjöru
- Bónus við Kjarnagötu
- Bónus Langholti
- Krambúðin Byggðavegi
- Nettó Hrísalundi
Bæjarbúar eru hvattir til að nýta sér þessa gáma en einnig er tekið við garðaúrgangi og fleiru á gámasvæði við Réttarhvamm og á móttökustöðinni Hlíðarvöllum við Rangárvelli.
Starfsfólk Akureyrarbæjar mun ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðamörkum. Afgreiðslutími gámasvæðisins við Réttarhvamm breytist í næstu viku þegar sumaropnun tekur gildi.
UMMÆLI