Akureyrarbær auglýsir starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs

Akureyrarbær leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga í starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs. Um er að ræða umfangsmikið stjórnunarstarf þar sem reynir á leiðtogahæfni og getu til að leiða fjölbreytta starfsemi, framkvæmdir og þróun mikilvægra innviða sveitarfélagsins. Þetta kemur fram í auglýsingu á vef Akureyrarbæjar í dag.
Undir sviðið heyra meðal annars fasteignir og mannvirki, framkvæmdir og viðhald, gatna- og fráveitumál, opin svæði, Hlíðarfjall, umhverfis- og loftslagsmál, almenningssamgöngur auk bruna- og almannavarna.
Leitað er að leiðtoga með stjórnunar- og rekstrarreynslu, háskólamenntun sem nýtist í starfi og þekkingu á framkvæmdum, mannvirkjum, tæknilegum innviðum eða öðrum málaflokkum sviðsins. Góð samskipta- og samstarfshæfni, frumkvæði og framsýni eru jafnframt mikilvægir eiginleikar.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2026.
Sjá nánari upplýsingar um starfið, hæfniskröfur og umsóknarferli í auglýsingu.
Tengdar greinar
Uppfært: 15. september 2026










