AkureyrarAkademían fagnar 20 ára afmæli

Í tilefni af 20 ára afmæli AkureyrarAkademíunnar (AkAk) á þessu ári kemur út ný skýrsla um verkefni sem fólk hefur unnið að hjá AkAk og um viðburði sem AkAk hefur staðið fyrir á árunum 2021–2026. Fyrsta skýrslan um þessi efni kom út á 15 ára afmælinu og fjallar um tímann 2006–2021.
Markmiðið með skýrslunum er að vekja athygli á fjölbreyttu fræða- og menningarstarfi hjá AkAk og þýðingu þess fyrir Akureyri og nágrenni. Frá upphafi hefur leiðarljósið í starfi AkAk verið að bjóða einstaklingum upp á góða aðstöðu til að vinna að sínum hugðarefnum og að vera aflvaki þekkingarsköpunar og miðla henni til samfélagsins.
Frá 2006 hafa 133 einstaklingar haft aðstöðu hjá AkAk, þar af 36 á tímabilinu 2021–2026 — námsmenn, kennarar, fræðimenn og frumkvöðlar. Félagið hefur einnig staðið fyrir yfir 250 viðburðum á 20 árum, þar af tæplega 100 á síðustu fimm árum, m.a. málþingum, fyrirlestraröðum og bakarís-fyrirlestrum.
„Þegar litið er yfir farinn veg er ljóst að starfsemin hefur gefið háskólanemum og öðrum á Akureyri og nágrenni tækifæri til menntunar og þekkingarsköpunar á heimaslóðum og að félagið er mikilvægur hluti þeirra innviða sem eru og þurfa að vera fyrir hendi á Akureyri svo að Norðurland sé eftirsóknarverður valkostur til búsetu, háskólanáms og þekkingarsköpunar,“ segir í tilkynningu frá AkureyrarAkademíunni.
Skýrsluna má nálgast hér
Tengdar greinar
Uppfært: 7. september 2026










