Aktóberfest flytur á Akureyrarvöll

Aktóberfest verður haldin í annað sinn á Akureyri 18. september næstkomandi. Í ár verður slegið upp risapartýtjaldi á Akureyrarvelli.
Hátíðin dregur nafnið sitt af Októberfest sem er þýsk þjóðhátíð með yfir 200 ára sögu, þar sem tónlist, dans, matur og bjór sameinast í einni stórri veislu.
Á síðasta ári var hátíðin haldin á Akureyri í fyrsta sinn þegar partýtjald var sett upp í portinu við Víking Brugghús. Þá seldist fljótt upp á hátíðina og skipuleggjendur ákváðu því að stækka hátíðina í ár og flytja á Akureyrarvöll.
Tónlistarfólk á borð við Ágúst Brynjars, Matta Matt, Neonbandið, Vigni Snær, Guðna Braga og Ayobe mun halda uppi stemningunni. Þá verða bjórhlaup, matarvagnar, þýsk matarmenning, karaoke og önnur skemmtiatriði.
Miðasala fer fram á Tix.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 14. september 2026










