Boccia-þjálfari á Akureyri hefur verið ákærður fyrir að hafa haft samræði og önnur kynferðismök við þroskaskerta konu í fjölda skipta á tímabilinu júní 2014 til júní 2015. Maðurinn neitaði sök þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun.
Samkvæmt ákærunni er maðurinn talinn hafa nýtt sér yfirburði sína gagnvart konunni, misnotað aðstöðu sína gróflega og ítrekað komið sér í aðstæður þar sem hann gat beitt hana ofbeldi á tímabilinu.
Brotin voru kærð árið 2015 en rannsókn málsins hefur tekið langan tíma vegna fjölda nauðganna og vitna ásamt því að brotaþolinn er sem fyrr segir þroskaskertur og rannsóknin því tímafrekari en ella.
Í ákærunni segir að manninum hafi verið kunnugt um fötlun konunnar vegna tengsla sinnar við hana sem þjálfari. Hann hafi útvegað henni húsnæði og bíl í janúar 2015 og hafi nýtt sér trúnað hennar í sinn garð. Aukinheldur hafi hann gerst persónulegur talsmaður hennar í maí 2015.
Í ákærunni er þess krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er krafist þess að hann greiði brotaþola tvær milljónir króna í miskabætur. Aðalmeðferð í málinu er fyrirhugðu í júní á þessu ári.
UMMÆLI