Ákærðar fyrir að veitast að 8 ára dreng fyrir utan Síðuskóla
Eftir Ingibjörg Bergmann·

Tvær konur á þrítugsaldri hafa verið ákærðar fyrir að hafa veist að 8 ára dreng á skólalóð Síðuskóla í september 2017. Konurnar kölluðu á drenginn skammir og fúkyrði og neyddu hann upp í bíl með sér. Þær keyrðu síðan drenginn heim til sín. Eldri konan er ákærð fyrir ólögmæta nauðung og barnaverndarlagabrot. Hún reif í handlegg drengsins og dró hann á eftir sér í átt að bifreiðinni sem konurnar voru á. Hin konan ók bifreiðinni og var því ákærð fyrir hlutdeild í brotum eldri konunnar.
Saksóknari fer fram á að konurnar verði dæmdar til refsingar og til greiðslu sakarkostnaðar. Móðir drengsins fer fram á fyrir hönd hans að fá greiddar 1,5 milljónir í miskabætur ásamt dráttarvöxtum.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










