Á fundi bæjarráðs Akureyrar í síðustu viku voru komur skemmtiferðaskipa til bæjarins og áhrif þeirra á starfsemi Sjúkrahússins til umræðu. Stjórnendur Sjúkrahússins á Akureyri hafa lýst yfir áhyggjum vegna álags sem skapast vegna komu ferðamanna á skemmtiferðaskipum yfir sumartímann.
Sigurður Einar Sigurðsson framkvæmdastjóri lækninga og handlækningasviðs á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Hulda Ringsted framkvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Jón Pálmi Óskarsson forstöðulæknir bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Inga Dís Sigurðardóttir formaður stjórnar Hafnasamlags Norðurlands og Pétur Ólafsson hafnarstjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Í bókun bæjarráðs segir:
Bæjarráð þakkar gestum fyrir komuna á fundinn og að vekja athygli á áhyggjum stjórnenda SAk vegna þess sérstaka álags sem skapast vegna komu ferðamanna á skemmtiferðaskipum í sumar. Mikilvægt er að Akureyrarbær og Hafnasamlag Norðurlands taki þátt í þeirri samvinnu og samhæfingu sem þarf til að tryggja bæði öfluga heilbrigðisþjónustu og örugga móttöku ferðamanna. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
UMMÆLI