NTC

Áhrif menningar og skapandi greina í landsbyggðum

Áhrif menningar og skapandi greina í landsbyggðum

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) efnir til málþings þann 20. nóvember næstkomandi um áhrif menningar og skapandi greina í landsbyggðum. Málþingið fer fram í Háskólanum á Akureyri (Sólborg við Norðurslóð) og í streymi.

Leitast verður eftir að skoða þá rannsóknaflóru sem tengist menningu og skapandi greinum á landsbyggðinni, áhrifum þeirra og hvaða tækifæri eru til frekari rannsókna. Jafnframt munu aðilar úr atvinnulífinu fjalla um eigin reynslu af áhrifum menningar og skapandi greina í landsbyggðum. Eyjólfur Guðmundsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, stýrir pallborði.

NTC

Dagskrá

13:00

Opnunarávarp

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum

13:10

Menning og skapandi greinar: Landfræðilegt spennusvæði?

Erna Kaaber, sérfræðingur við Háskólann á Bifröst

13:35

Frá mínu sjónarhorni

Björt Sigfinnsdóttir, meðstofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri LungA, Kaospilot og söng- og listakona

13:55

Landfræðilegur mismunur á nýsköpun á Íslandi: Er nýsköpun fyrirtækja ólík eftir landshlutum á Íslandi, skapandi greinum og öðrum atvinnugreinum?

Vífill Karlsson, prófessor við Háskólann á Bifröst og dósent við Háskólann á Akureyri

14:20

Uppbygging og áhrif nýsköpunarjarðvegs

Stefán Pétur Sólveigarson, verkefnastjóri Hraðsins, miðstöðvar nýsköpunar

14:40

Hlé – kaffi og léttar veitingar

15:10

Pallborð

Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar

Örlygur Hnefill Örlygsson, framleiðandi

Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi og yfirverkefnastjóri hjá Austurbrú

Anna Hildur Hildibrandsdóttir, lektor við Háskólann á Bifröst og formaður stjórnar Rannsóknaseturs skapandi greina

16:00 Málþingsslit

NTC

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) var stofnað haustið 2023. Það er umsýslað af Háskólanum á Bifröst en auk hans eru stofnaðilar Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands.

Meginmarkmið RSG er að efla rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina, með hliðsjón af fjölþættum áhrifum listsköpunar og menningarframleiðslu á samfélagið. RSG er óháður rannsóknaraðili og leggur áherslu á akademískt sjálfstæði í allri starfsemi. Rannsóknasetrið sinnir fjölbreyttum rannsóknum og greiningum á atvinnulífi menningar og skapandi greina og vinnur að því að styrkja rannsóknamenningu og -innviði á þessu sviði. Hér má nálgast ítarlegri upplýsingar um stefnu RSG.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó