Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson verður brekkusöngvari á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Ágúst segist stoltur og þakklátur að fá hlutverkið. Hann tekur við hlutverkinu af Magnúsi Kjartani Eyjólfssyni.
Ágúst hefur skotist upp á stjörnuhimininn eftir að hann tók þátt í Söngvakeppninni 2025 með laginu Eins og þú og hefur verið duglegur við að gefa út tónlist síðan þá. Hann hefur áður komið fram á Þjóðhátíð með hljómsveitinni Færibandið.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Stór og mikil hefð með langa sögu, og það er ótrúleg tilfinning að fá að verða hluti af henni. Ég hlakka til að fá að syngja og spila með ykkur öllum í Herjólfsdal, á sunnudagskvöldi í ágúst mánuði, á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum










