Ágúst Þór Brynjarsson hefur gefið út annað lagið af plötunni Hjartað á milljón, sem kemur út 23. apríl næstkomandi. Söngkonan Una Torfa syngur með Ágústi í laginu. Lagið heitir Inn í síðustu nóttina og er aðgengilegt á helstu streymiveitum.
Ágúst og Una sömdu lagið með Hákoni Guðna Hjartarssyni en Ágúst segir að Una Torfa hafi verið efst á blaði hjá honum og Hákoni þegar þeir ræddu um fólk sem þeir vildu fá með á plötuna. Ágúst segir að það hafi verið algjörlega einstök upplifun að semja lagið með henni.
„Það var svo gaman að sjá þegar Una mætti, settist niður með gulu skrifblokkina sína og spurði okkur um hvað við værum að semja. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með hvernig hún vinnur – hvernig hún nálgast texta og melódíur,“ skrifar Ágúst á samfélagsmiðlum
Hann segir að lagið Inn í síðustu nóttina fjalli um að vera til staðar fyrir þann sem maður elskar, ár eftir ár eftir ár. Að taka stóru ákvarðanirnar sem breyta lífinu saman en líka þessar litlu, eins og hvað á að vera í matinn, eða hvaða mynd skal horfa á.
Ágúst og Una Torfa frumfluttu lagið Inn í síðustu nóttina í fyrsta þætti Miðstöðvarinnar á RÚV. Flutningin má sjá í spilaranum neðst í greininni.
Hlustaðu á lagið Inn í síðustu nóttina:










