NTC

Áframhaldandi stuðningur við beint millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða

Áframhaldandi stuðningur við beint millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða

Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, skrifaði undir samninga um áframhaldandi stuðning úr Flugþróunarsjóði við Markaðsstofu Norðurlands, Flugklasann og Austurbrú, um beint millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða þann 18. nóvember síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Markmið samninganna er að styðja við markaðssetningu á Norðurlandi og Austurlandi sem áfangastað fyrir beint millilandaflug, í samræmi við stefnu stjórnvalda um að stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um land allt sem og styðja við uppbyggingu nýrra áfangastaða.

Framsókn

Um er að ræða 40 m.kr. framlag til hvors áfangastaðar um sig, sem dreifast á næstu tvö ár. Til viðbótar er einnig í samningnum við Markaðsstofu Norðurlands 20 m.kr. styrkur til Flugklasans Air 66N, en hann er samstarfsverkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu á Norðurlandi, sveitarfélaga og hagsmunaaðila, og hefur það verkefni að markaðssetja og kynna Akureyrarflugvöll sem áfangastað fyrir millilandaflug allt árið um kring með það að markmiði að fjölga ferðamönnum á Norðurlandi og lengja dvöl þeirra á svæðinu.

Flugþróunarsjóður var stofnaður árið 2015 og er honum ætlað að stuðla að uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi með því að styðja við reglulegt millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða. Starfsemi Flugþróunarsjóðs er í samræmi við ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda til ársins 2030, sem afgreidd var frá Alþingi í júní sl. Ein aðgerðanna í aðgerðaáætluninni snýr að aukinni dreifingu ferðamanna, með styrkingu á Flugþróunarsjóði, og mun framlag til hans á næsta ári aukast um 100 m.kr. til að fylgja þeirri áherslu eftir.

„Það er mikilvægt að við höldum áfram að styðja við beint millilandaflug inn á Norðurland og Austurland. Með því erum við að stuðla að verðmætasköpun með framþróun ferðaþjónustu, minnka árstíðasveiflu og dreifa ferðamönnum víðar um landið. Slíkur stuðningur er forsenda fyrir starfsemi öflugra og fjölbreyttra fyrirtækja í ferðaþjónustu, gististaða og veitingastaða á Norðurlandi og Austurlandi, árið um kring,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

NTC


Uppbygging og vöruþróun

Framboð á millilandaflugi um Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Til að fylgja eftir þessari þróun munu stjórnvöld á næstunni standa að landamærakönnun á Akureyrarflugvelli, sem felst í því að Rannsóknarmiðstöð ferðamála framkvæmir rannsókn sem ætlað er að varpa ljósi á ferðahegðun þeirra sem koma með beinu millilandaflugi til Akureyrar. Niðurstöður rannsóknarinnar geta nýst vel í eftirfylgni með Ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun hennar.

Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands tekur í sama streng og segir „stuðningur ráðherra ferðamála við starf Flugklasans Air 66N til næstu tveggja ára er gríðarlega mikilvægur. Beint millilandaflug hefur hafist um Akureyrarflugvöll til fimm áfangastaða í Evrópu og þarf að sinna því með markaðssetningu, vöruþróun og uppbyggingu þjónustu. Sveitarfélög á Norðurlandi hafa stutt við rekstur Flugklasans frá árinu 2011 og starfið verið unnið í góðri samvinnu við ferðaþjónustuna. Miklu skiptir að hafa fyrirsjáanleika í þessari vinnu og skilning á þörfum flugfélaganna. Framundan er mikil vinna við að grípa þau tækifæri sem beina flugið skapar og tryggja verðmætasköpun og dreifingu ferðamanna um landi.“

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, lýsti mikilli ánægju með samninginn, sem skapar svigrúm og fyrirsjáanleika þar sem hann er til tveggja ára. „Þessi stuðningur er staðfesting á vilja stjórnvalda til þess að byggja upp fleiri gáttir inn í landið, stuðla að vöruþróun í ferðaþjónustu og uppbyggingu áfangastaðarins Austurlands.“

Frétt og myndir: Markaðsstofa Norðurlands.

VG

UMMÆLI

Sambíó