MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Áfram mikill erill hjá lögreglu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Vilji fyrir fjölgun eftirlitsmyndavéla á Akureyri
kaffid.is

Áfram hefur verið mikill erill hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra síðastliðinn sólarhring. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook þar sem segir að 86 mál séu skráð í kerfi lögreglu þennan sólarhring.

Í tilkynningu lögreglu segir að mikill fjöldi gesta hafi sótt sparitónleika hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyrarvelli í gærkvöldi og að langflest hafi skemmt sér vel og notið dagskrárinnar.

Fimm einstaklingar gistu í fangaklefa, tveir vegna heimilisofbeldis, tveir vegna ölvunar og vímuástands og einn vegna grófrar líkamsárása og er það mál til rannsóknar.

Sjö mál komu upp þar sem afskipti voru höfð af börnum vegna ástands, barnavernd og foreldrar upplýst.

Sextán umferðarlagabrot eru skráð síðastliðinn sólarhring og fimm þeirra vegna aksturs undir áhrifum áfengis.

Tvö umferðaslys eru skráð og bæði þeirra vegna falls af hlaupahjóli, hvorugur aðilinn alvarlega slasaður en annar þeirra grunaður um að hafa stýrt hjólinu undir áhrifum vímugjafa, báðir voru þeir fluttir undir læknishendur til skoðunar.

Eitt fíkniefnamál kom upp þar sem grunur er um sölu og dreifingu fíkniefna og nokkuð magn fíkniefna haldlagt, málið er áfram til rannsóknar.

Nokkuð var um ryskingar og ólæti sem og þurfti að aðstoða allmarga vegna ölvunar og vímuástands.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026