Gæludýr.is

Afrakstur kvennakvöldsins afhentur

Afrakstur kvennakvöldsins afhentur

Kvennakvöld Þórs og KA, sameiginlegt styrktarkvöld fyrir kvennaliðin fjögur í boltaíþróttunum á Akureyri, knattspyrnulið Þórs/KA, handboltalið KA/Þórs, blaklið KA og körfuboltalið Þórs, var haldið í maí og nú hafa þessi fjögur lið fengið afhentan styrk frá kvennakvöldsnefndinni.

Kvennakvöldsnefndin afhenti fulltrúum félaganna sem að kvöldinu stóðu afraksturinn. Það var gert í dýrindis veðri í Lystigarðinum í gær.

Undirbúningsnefndin bauð fulltrúum úr stjórn og þessum fjórum kvennaliðum í Lystigarðinn á Akureyri í dásamlegu veðri í hádeginu í dag þar sem hvert lið fékk afhenta ávísun upp á eina milljón króna.

Nánar á Thorsport.is

VG

UMMÆLI

Sambíó