RÚV greindi nýverið frá því að til skoðunar væri að reisa sex hæða fjölbýlishús með atvinnuhúsnæði á jarðhæð þar sem Kristjánsbakarí starfaði áður við Hrísalund. Bakaríið hætti starfsemi í september síðastliðnum og hyggst eigandi hússins nú nýta lóðina undir blandaða byggð.
Teikningar arkitektastofunnar Kollgátu gera ráð fyrir um 25–30 íbúðum í 4.500 fermetra byggingu, auk bílastæðahúss í kjallara. Skipulagsráð Akureyrarbæjar tók erindinu vel en það þarf að breyta aðalskipulagi svo heimilt sé að byggja íbúðir á svæðinu, sem nú er skilgreint sem athafnasvæði. Ráðið sér tækifæri í að þróa svæðið sunnan Þingvallastræti í átt að snyrtilegri blöndu íbúða og þjónustu.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?









