Afgreiðslutímar og þjónusta Akureyrarbæjar yfir hátíðirnar

Afgreiðslutímar og þjónusta Akureyrarbæjar yfir hátíðirnar

Afgreiðslutímar og þjónusta Akrueyrarbæjar tekur að venju breytingum um jól og áramót. Helstu upplýsingar um breytingar á þjónustu bæjarins hafa verið birtar á vef Akureyrarbæjar og má sjá hér að neðan:

Ráðhúsið, Geislagötu 9, verður opið virka daga kl. 9-15 en lokað verður á aðfangadag og gamlársdag. Sama gildir um velferðarsvið og fræðslusvið í Glerárgötu 26.

Þjónusta Strætisvagna Akureyrar og ferliþjónusta verður hefðbundin á virkum dögum í kringum jól og áramót. Ekið verður samkvæmt áætlun til kl. 12 á aðfangadag og gamlársdag. Enginn akstur verður á jóladag og nýársdag. Helgarakstur strætisvagna verður annan í jólum og 2. janúar.

Listasafnið á Akureyri er opið alla daga fram að jólum kl. 12-17. Lokað verður dagana 24., 25., 31. desember og 1. janúar.

Amtsbókasafnið verður opið sem hér segir:

Afgreiðslutímar gámasvæðis við Réttarhvamm:

23. desember13-18
24. desemberLokað
25. desemberLokað
26. desember13-17
27. desember13-18
28. desember13-18
29. desember13-18
30. desember13-18
31. desemberLokað
1. janúarLokað

Sundlaugar

 Sundlaug AkureyrarGlerárlaugSundlaugin í Hrísey
23. desember6.45-18.006.45-13.00LOKAÐ
24. desember6.45-12.006.45-12.00LOKAÐ
25 .desemberLOKAÐLOKAÐLOKAÐ
26. desember11.00-19.00LOKAÐLOKAÐ
27 .desember6.45-19.006.45-21.0015.00-18.00
28. desember6.45-19.009.00-14.3013.00-16.00
29. desember9.00-19.009.00-12.0013.00-16.00
30. desember6.45-21.006.45-21.0015.00-19.00
31. desember6.45-12.006.45-12.00LOKAÐ
1. janúarLOKAÐLOKAÐLOKAÐ

Gámar fyrir flugeldarusl verða við Bónus Langholti, Bónus Kjarnagötu og við Hagkaup.

Með því að smella hér getur þú nálgast upplýsingar um afgreiðslutíma og þjónustu ýmissa fyrirtækja og stofnana á Akureyri sem bjóða upp á afþreyingu, veitingar og verslun. Athugið að skjalið er á ensku.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó