Af hverju ekki að byggja upp Tækniskólann á Akureyri?

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að Akureyrarbær sé til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri.
Óvissa ríkir nú um hvar skólinn verður í framtíðinni eftir að samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði gekk ekki upp.
„Þegar stjórnsýslan er að mestu í Reykjavík, stofnanir ríkisins þar, þjónustan þar og sífellt fleiri störf þar, þá er það ekki alveg augljóst að næsta skref í eflingu byggðar um allt land sé að auka enn vægi höfuðborgarsvæðisins á Alþingi.En það er alveg hægt að snúa þessari umræðu við. Ef ríkisstjórnin vill sýna í verki að hún sé ekki ríkisstjórn höfuðborgarsvæðisins heldur ríkisstjórn alls landsins, þá eru tækifærin víða. Þau blasa við,“ skrifar Berglind á Facebook.
„Til dæmis: Af hverju ekki að byggja upp Tækniskólann á Akureyri og skapa öflugan vettvang fyrir tæknimenntun á háskólastigi á landsbyggðinni? Eitthvað sem lengi hefur verið kallað eftir. Það myndi færa menntun, þekkingu, störf og tækifæri út á land. Alvöru byggðastefna í einni sterkri aðgerð.“
„„Við hér í Akureyrarbæ erum alveg til í það samtal og ég veit að við myndum finna Tækniskólanum góðan stað í okkar öfluga sveitarfélagi.“
Tengdar greinar
Uppfært: 17. september 2026










