MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Ætla að skapa „Græna Hatts“ stemningu í Pakkhúsinu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
IMG_5917
kaffid.is

Hljómsveitin Hástafir mun halda tónleika í Pakkhúsinu við Hafnarstræti 19 næstkomandi laugardag, 8. ágúst, klukkan 20:00. Kex Stúdíó stendur fyrir tónleikunum en Sóley Eva, önnur söngkvenna Hástafa er einnig ein af tveimur eigendum Kex Stúdíó.

Tónleikarnir eru liður í vegferð Kex Stúdíó til að bæta flóru menningarlífs á Akureyri með skemmtilegum viðburðum. Í grunninn er Kex Stúdíó vintage fatabúð en Sóley segir að planið hafi alltaf verið að gera meira.

Hin söngkonan sveitarinnar er Ísabella Sól og ásamt þeim skipa þeir Emil Andri, Friðrik Aðalgeir og Theodór Marvin hljómsveitina Hástafi. Öll eiga þau sameiginlegt að vera með margra ára reynslu í tónlist en þetta er í fyrsta sinn sem þau koma fram saman sem hljómsveit.

„Bandið heitir Hástafir sem er smá orðaleikur á að „syngja með hástöfum“ sem verður markmið kvöldsins, bæði okkar og áhorfendanna. Við viljum reyna að skapa smá „Græna hatts“ stemningu en lagalistinn er aðallega samsettur af popp/rokk lögum,“ segir Ísabella Sól í samtali við Kaffið.

„Tónleikarnir eru algjörlega skipulagðir af sjálfsdáðum þar sem við viljum halda kostnaði í algjöru lágmarki. Við erum gríðarlega þakklát fyrir samfélagið hérna fyrir Norðan en við erum svo lánsöm að Skógarböðin eru til að lána okkur hljóðkerfi og að við fengum að nota veislusalinn í Pakkhúsinu sem tengdaforeldrar mínir eiga. Sóley Eva er síðan að sauma búninga á okkur! Það er öllum þeim að þakka að við náum að halda aðgangseyrinum svo lágum, líklega með ódýrustu tónleikum landsins,“ segir Ísabella.

Hún segir að þetta sé bara byrjunin hjá Hástöfum og að planið séu að halda áfram að koma fram. Hljómsveitin sé með ýmsar hugmyndir.

„Þetta er allt gríðarlega hæfileikaríkt fólk í hljómsveitinni og við erum sífellt að semja meira og koma með hugmyndir af ábreiðum sem væri gaman að flytja.“

Á tónleikunum í Pakkhúsinu munu Hástafir flytja klassíska smelli, á íslensku og ensku ásamt vel völdum frumsömdum lögum.

„Við ætlum að spila frumsamin lög á íslensku. Þau eru samin í bland af öllum í hljómsveitinni en við viljum að sem flestir skemmti sér og munum þá líka halda stemningunni uppi með góðum hitturum bæði á íslensku og ensku. Það ættu allir að fá að heyra eitthvað sem þau fíla,“ segir Ísabella að lokum.

Hér má finna viðburðinn á Facebook.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026