MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ætla að byggja baðstað og nýta heitt vatn úr Vaðlaheiðargöngunum

Eftir Ritstjórn·
skógarböð
kaffid.is

Eignarhaldsfélagið Skógarböð hefur uppi áform um að byggja baðstað með tilheyrandi þjónustu í landi Ytri-Varðgjár, skammt frá Vaðlaheiðargöngum í Eyjafirði.

Landið sem um ræðir er í Eyjafjarðarsveit og hefur sveitarstjórn samþykkt að kynna skipulagsbreytingu vegna deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi vegna þessara áforma Skógarbaða ehf. Gert er ráð fyrir að heitt vatn verði leitt að staðnum með lögn frá göngunum í samvinnu við Norðurorku en lengd lagnarinnar verður liðlega tveir kílómetrar. N4 greinir frá þessu í dag.

Stefna að opnun árið 2022 ef allt gengur eftir

Hjónin Sigríður María Hammer og Finnur Aðalbjörnsson standa að þessu verkefni en þau hafa verið í miklum undirbúningi fyrir verkið undanfarið og stefna að því að verklegar framkvæmdir hefjist næsta vor, ef allt gengur eftir. „Ef allt gengur að óskum, verður hægt að taka á móti fyrstu gestum baðstaðarins 2022 við gerum ráð fyrir að böðin geti tekið á móti 180 manns í einu, húsakosturinn verði um 600 fermetrar og laugarnar um 400 fermetrar. Þar sem verkefnið hefur verið kynnt, hafa viðtökurnar verið afskaplega jákvæðar, þannig að við erum bjartsýn á þetta allt saman, enda vantar klárlega öflugan segul í ferðaþjónustunni hérna á Eyjafjarðarsvæðinu“ segja þau í samtali við N4.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026