Þau Ari Ólafsson, Pétur Ernir Svavarsson og Karolína Sif Benediktsdóttir standa fyrir jólatónleikum í Akureyrarkirkju í kvöld frá frá 20:00 til 21:30.
Ari Ólafsson er landsmönnum kunnur en hann tók meðal annars þátt í Eurovision fyrir okkar hönd árið 2018. Karolína Sif er 18 ára stúlka frá Bolungarvík. Pétur Ernir er 19 ára gamall Ísfirðingur. Hann bæði spilar á píanó á tónleikunum sem og syngur. Þá sér hann um allar útsetningar.
Heiðursgestur á völdum tónleikum er Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín.
Þríeykið mun meðal annars flytja lagið Æskujól sem er samið af Pétri og Karólínu. Þau fluttu lagið á N4 á dögunum en myndband af því má sjá hér að neðan.
Miðasala á tónleikana í kvöld fer fram á tix.is en börn sem geta setið með foreldrum í sæti fá frítt inn.
UMMÆLI