Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Jólakaffið

Aðventusýningar Norðlenskrar hönnunar og handverks í Hlíðarbæ

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Aðventusýningar Norðlenskrar hönnunar og handverks verða haldnar í Hlíðarbæ, rétt norðan Akureyrar, nú fyrstu helgina í aðventu, 28. til 29. nóvember, klukkan 11 til 17 báða dagana. Hátt í 30 aðilar kynna þar og selja hönnun sína, handverk, list og sælkeravöru.

Nýja kaffibrennslan býður upp á ilmandi kaffi og sýnendur bjóða upp á piparkökur með því.

Þátttakendur í sýningunni koma víða að af Norðurlandinu, allt frá Skagafirði austur í Þistilfjörð en meirihlutinn kemur þó frá Akureyri.  

Sýningaraðilar: 

Blúndur og blóm 

BRYN Design

Draumablá

Glansverkstæðið

HALLDORA

Helena saumar

Hilma - hönnun og handverk

KAOS - Íslensk hönnun og handverk

Keramikloftið

KRÓ Design

LINDA ÓLA art

Mynthringar og allskonar

Ósk barnaföt

Sif hannar 

Stefán Traustason

Sælusápur

Tré og föndur

Tréskurður

Töfra handverk

Vonarbrú

Ögn Icelandic bækurnar

Öxnhólshandverk

Og í sælkeradeildinni verða: 

Huldubúð

Garðurinn minn 

Reykkofinn við höfnina

Korg Kaffibrennsla

Öxnhóls kjöt

Kökubasar Kvenfélags Hörgdæla á laugardeginum

Kökubasar Almannaheillafélgsins Vonarbrúar á sunnudeginum

„Hittumst og njótum góðra stunda í upphafi aðventu með skapandi fólki og vönduðum vörum úr héraði, í gamla góða Hlíðarbæ,“ segir í tilkynningu.

Tengdar greinar

Uppfært: 26. nóvember 2026