MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Aðstæður með besta móti á Vormóti Óðins

Eftir Ingólfur Stefánsson·
20260509_144924
kaffid.is

Vormót Óðins fór fram laugardaginn 9.maí. 56 keppendur frá Sundfélaginu Óðni tóku þátt. „Aðstæður voru með besta móti sem er mjög mikilvægt til að hægt sé að halda mót á heimavellinum. Mótið er mikilvægur þáttur í starfi Óðins þar sem yngstu iðkendur fá tækifæri til að öðlast keppnisreynslu  en þetta er oft fyrsta mótið sem þeir taka þátt í,“ segir í umfjöllun um mótið á vef Óðins.

„Á mótinu var einnig verið að vígja nýjan tímatökubúnað og eiga tæknimennirnir okkar stórt hrós skilið fyrir frábæra vinnu við að koma þessu upp og keyra mótið áfram.Frábært mót í alla staði og við þökkum öllum þeim sem komu að mótinu á einn eða annan hátt.“

Á vef Óðins má finna fleiri myndir frá mótinu.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026