Aðflugsæfingar Atlandshafsbandalagsins í ágúst
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland heldur áfram, nú með komu flugsveitar belgíska flughersins sem mun annast loftrýmisgæslu Atlandshafsbandalagsins í ágúst. Með fyrirvara um veður, þörf og aðrar aðstæður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllunum á Akureyri (BIAR) og Egilsstöðum (BIEG), á tímabilinu frá 7. til 18. ágúst. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar í dag.
Áætlað er að verkefninu ljúki um miðjan september. Það er unnið af Landhelgisgæslu Íslands í umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia, sbr. varnarmálalög og samkomulag um fyrirkomulag á stjórnun og sveigjanlegri notkun loftrýmis.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










