„Að vera á Akureyri eru mikil fríðindi út af fyrir sig“

Steinar Óli Sigfússon, stúdent í samstarfi Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík í Iðnaðar- og orkutæknifræði, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í skólanum.

Af hverju ákvaðst þú að skrá þig samstarf Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík í Iðnaðar- og orkutæknifræði? 

Ég hef lengi ætlað mér í verkfræðinám en alltaf verið hálf hikandi við að fara alla leið suður í slíkt nám. Nú er ég uppalinn Skagfirðingur og vil helst ekki fara lengra að heiman en í mesta lagi norður á Akureyri. Þegar ég vissi af þessari nýjung fyrir norðan var ég fljótur að skrá mig og sé alls ekki eftir því. 

Námið sjálft er náttúrulega bráðsniðugt. Þetta er hæfileg blanda af véla- og rafmangs-vinnu og ætti í raun að vera næsta stopp fyrir allt iðnlært fólk á svæðinu sem langar að bæta við sig og fara í hvers konar hönnunar- eða skipulagsvinnu. En auðvitað á þetta líka hellings erindi við bóknámsfólk. 

Svo sér maður hvað þetta munar miklu fyrir landsbyggðarfólkið. Með mér er mikill fjöldi fólks af stór-Norðurlandinu og Austurlandi sem sér miklu meiri hag í því að læra á Akureyri en að þurfa fara suður, sem var alltaf raunin fyrir þá sem vildu fara í tækni- eða verkfræðinám. 

Hvað er skemmtilegast við að fá að stunda þitt nám hér á Akureyri? 

Að vera á Akureyri eru náttúrulega mikil fríðindi út af fyrir sig. Mér tekst að stunda hestamennsku af miklu meira kapppi hér en mér tækist fyrir sunnan. Vegalengdir eru allar í styttri kantinum svo daglega amstrið er þægilegt. Svo er hér nánast öll afþreying sem mér dytti í hug. Ég hef til að mynda aldrei verið eins duglegur að sinna vetraríþróttum og núna. 

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri? 

Það er í raun virkilega gaman að vera stúdent hérna. Hér eru regluleg bjórkvöld, vísindaferðir og stærri viðburðir á vegum háskólans. Nemar eiga kost á afslætti í flesta afþreyingu sem eru notaðir óspart. Mér hefur í það minnsta aldrei leiðst. 

Hvar finnst þér best að læra? 

Klárlega á Borgum. Þar er verklega aðstaðan okkar svo við þurfum mikið að vera þar alla jafna og það venst ansi vel. Nú höfum við í nemendafélögunum sem halda til þar lagt mikið í að bjóða upp á afþreyingu á svæðinu og það er að skila sér. Þarna erum við með prýðis píluaðstöðu, borðtennisborð og frábæran kaffikrók. 

Hvaða ráð myndir þú gefa nýnemum sem eru að hefja nám við háskólann í haust? 

Að vera fljót að taka þátt. Auðvitað er stór hluti stúdenta í fjar- eða lotunámi en sá hópur sem er staðbundinn hefur kost á svo rosalega mörgum viðburðum og góðu félagslífi. Nemendafélögin leggja mikið í sitt starf og fyrir þau sem hafa á annað borð áhuga á að skemmta sér er ótrúlega mikið í boði. 

Hvað er það besta við að vera HA-ingur? 

Að vera HA-ingur er að vera hluti af sterku, samheldnu samfélagi. Hér er frábær aðstaða til náms, gott aðgengi að kennurum og mikil afþreying. Það þykir mér meiriháttar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!