Áætlaður kostnaður um 500 milljónir
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Kostnaður vegna viðhalds við Akureyrarkirkju er gróflega áætlaður um 500 milljónir. RÚV greinir frá þessu í samtali við Hildi Eir Bolladóttur þar sem hún tekur fram að skipta þurfi um gólfefni, laga glugga, gera við orgelið, laga loftræstinguna og skipta um eldhús í safnaðarheimilinu.
Til þess að aðstoða við viðgerðinar hafa hollvinasamtökin Vinir Akureyrarkirkju verið stofnuð með það að ljósi að aðstoða við greiðslu þess kostnaðar sem viðgerðirnar kosta. Viðgerðum á að vera lokið fyrir 2040 þegar kirkjan fagnar 100 ára afmæli sínu. Hér má finna heimasíðu Vina Akureyrarkirkju.
Nánar á vef RÚV.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










