NTC

Áætlað að Akureyringar hafi tínt um tvö tonn af rusliMynd: Akureyri.is

Áætlað að Akureyringar hafi tínt um tvö tonn af rusli

Plokkdagurinn 24. apríl síðastliðinn tókst frábærlega samkvæmt Akureyrarbæ og er áætlað að Akureyringar hafi tínt um tvö tonn af rusli yfir daginn.

Vorhreinsun sveitarfélagsins er nú í fullum gangi og eru götur sópaðar af miklum krafti. Næsta skref í vorhreingerningu bæjarins er að snyrta garða og gróður í kringum heimili og vinnustaði. Gámar undir garðaúrgang hafa verið settir á valda staði í hverfum bæjarins og verða þar til 20. maí.

Gámarnir eru á eftirfarandi stöðum:

  • Hagkaup
  • Nettó Hrísalundi
  • Bónus við Kjarnagötu
  • Bónus Langholti
  • Aðalstræti sunnan Duggufjöru
  • Bugðusíðu við leiksvæði
  • Krambúðin Byggðavegi

„Bæjarbúar eru hvattir til að nýta sér þessa gáma en einnig er tekið við garðaúrgangi og fleiru á gámasvæði við Réttarhvamm og á móttökustöðinni Hlíðarvöllum við Rangárvelli,“ segir á vef bæjarins.

Sambíó

UMMÆLI