A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri 10.-12. október 

A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri 10.-12. október 

A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri 10.-12. október næstkomandi. A! er þriggja daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í tíunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði.
Hátíðin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi þar sem einungis er um gjörningalist að ræða úr öllum listgreinum.

Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. 

Þátttakendur eru: Magnús Helgason, Hekla Björt Helgadóttir, Fríða Karlsdóttir, Dustin Scott Harvey, Ashima Prakesh og Éva Berki, Véný Skúladóttir, Christalena Hughmanick, Clare Almere, Henrik Koppen, Kristján Helgason, Guðmundur Steinn Gunnarsson og Birgir Sigurðsson, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, Kraftverk (Anna Kolfinna Kuran, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Elísabet Birta Sveinsdóttir, Gígja Jónsdóttir og Guðrún Selma Sigurjónsdóttir), Heather Sincavage (á mynd) og Sarah Hammeken.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Vídeólistahátíðarinnar Heim, Einkasafnsins, Gilfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó