9 staðir sem við viljum fá aftur á Akureyri
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Hin goðsagnakennda Nætursala á Akureyri hefur skellt í lás. Lokun staðarins er enn ein áminning á miskunnarlaust viðskiptalíf bæjarins. Í gegnum tíðina hafa bæjarbúar þurft að horfa á eftir ótal stöðum sem höfðu fangað hug og hjörtu þeirra hverfa úr bæjarlífinu á kostnað stórfyrirtækja á borð við Hlöllabáta og Samkaup.
Þessir staðir munu þó alltaf lifa í minningu okkar svo lengi sem við lifum. Í tilefni af lokun Nætursölunnar ákváðum við að taka saman lista yfir þá staði sem við á Kaffinu söknum hvað mest. Við munum þó alltaf hafa Greifann, Bautann og Brynju, og sennilega Sjallann líka.
- Borgarsalan Miðbærinn hefur ekki enn jafnað sig á því að missa Borgarsöluna.
- Síða Einhver allra heiðarlegasta sjoppa í sögu Akureyrar. Íbúar síðuhverfis halda enn í dag að sjoppa og Síða séu samheiti.
- Garðshorn Önnur hverfissjoppa hrifsuð úr klóm okkar. Krakkar í dag munu aldrei upplifa þau forréttindi að láta afgreiðslufólk setja nammi í poka fyrir sig.
- Mongó Það er aldrei til of mikið af pítsastöðum.
- Keiluhöllin Keiluhöllin lokaði á síðasta ári. Nú hafa Akureyringar aldrei neitt að gera.
- Pengs Eftir lokun Pengs er ekki hægt að fara neitt ef það er ekki laust sæti á Krua Siam.
- Vín Þvílík ævintýri sem fjölskyldur upplifðu þegar hægt var að keyra inn á Hrafnagil ,fá sér ís og skoða páfagauka. Sumir gengu jafnvel svo langt að halda því fram að ísinn í Vín væri betri en Brynjuís.
- Kaffi Akureyri Hvar eiga unglingar á Akureyri núna að fara í sinn fyrsta djammsleik?
- Bónus Vídeó Það er ekki eins að panta sér Domino’s pítsu án þess að fá eina nýja og eina gamla með.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










