MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

87 milljóna króna halli á rekstri Akureyrarbæjar

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
julia-taubitz-XZzn7K0tkEg-unsplash
kaffid.is

Lítilsháttar halli var á rekstri A- og B-hluta Akureyrarbæjar fyrri hluta ársins 2026. Fram kom á vef Akureyrarbæjar að gert hafði verið ráð fyrir 30 milljóna króna afgangi en hallinn var 87 milljónir króna.

„Minniháttar halli á samstæðunni miðað við áætlun skýrist að mestu af áhrifum þrálátrar verðbólgu og hærri lífeyrisskuldbindinga en lagt var upp með við gerð fjárhagsáætlunar. Rekstrarniðurstaða aðalsjóðs er hins vegar betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Lykilatriði er að niðurstaðan sýnir að reksturinn skapar gott svigrúm fyrir áframhaldandi fjárfestingar og góða þjónustu við íbúa,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á vef bæjarins.

Afkoma tímabilsins var neikvæð um 363 milljónir króna sem er 124 milljónum betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tekjur námu 21,5 milljörðum króna, sem er um 700 milljónum yfir áætlun, á meðan gjöldin voru 19 milljarðar króna eða um 680 milljónum umfram áætlun, aðallega vegna launa- og lífeyriskostnaðar. Þrátt fyrir þetta var sjóðsstreymi sterkt og nam veltufé frá rekstri 2,3 milljörðum króna. Staðan í lok tímabilsins sýnir að heildareignir eru 81,4 milljarðar króna og stendur eiginfjárhlutfallið í 37,5%.

Tengdar greinar

Uppfært: 1. október 2026