Virk smit á Norðurlandi eystra eru nú 85 og fækkar því um 14 virk smit frá því í gær þegar 99 virk smit voru skráð á svæðinu. Þetta kemur fram í nýjustu tölum á covid.is í dag.
Einnig eru 85 einstaklingar í sóttkví á Norðurlandi eystra í dag. Sautján ný smit greindust á landinu öllu í dag og fimm þeirra greindust utan sóttkvíar.
Búast má við því að Lögreglan á Norðurlandi eystra birti lista yfir ný smit á Norðurlandi eystra síðar í dag.