8 smit eru nú staðfest á Norðurlandi eystra, samkvæmt upplýsingum á covid.is þar sem nýjustu tölur frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra birtust klukkan 13. Hefur því fjölgað um 3 síðan í gær þegar 5 voru smitaðir.
356 einstaklingar eru nú í sóttkví á Norðurlandi eystra en í gær voru 318 einstaklingar í sóttkví.
Á landinu öllu eru staðfest smit nú orðin 648 og 8205 eru í sóttkví. Fyrsta andlátið vegna veirunnar hefur verið staðfest hér á landi en sjötug kona lést á smitsjúkdómadeild Landspítalans í gær.
Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.