Skíðafélag Akureyrar stendur fyrir skíðamótinu 66°NORTH CUP í Hlíðarfjalli 23. til 25. mars næstkomandi. Mótið er FIS mót og þátttakendur verða bæði keppendur frá aðildarfélögum SKÍ og erlendir keppendur. Keppt verður í tveim svigum og tveim stórsvigum í kvenna og karlaflokki.
Keppendur þurfa að hafa gilt FIS keppnisleyfi og hafa fyllt út Athlete Declaration, þjálfarar verða beðnir um að sýna mótshaldara útfylltar og undirritaðar slíkar yfirlýsingar fyrir skráða keppendur.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?










