Í gær hófst stórt alþjóðlegt skíðamót uppi í Hlíðarfjalli og mun standa yfir fram á miðvikudag. Aðalstyrktaraðili mótsins er 66°Norður og hefur mótið því verið nefnt 66°NORTH CUP.
Á vef Skíðafélags Akureyrar er fjallað um fyrsta daginn og gekk dagurinn vel fyrir sig þrátt fyrir drjúga ofankomu á köflum. Brautirnar létu á sjá en það var gríðarlega öflugur hópur sjálfboðaliða úr mörgum skíðafélögum sem lagðist á eitt og sá til þess að allt gengi skv. áætlun.
Hér að neðan má sjá yfirlit frá degi eitt:
Barði Westin tók ljósmyndir

Á dagskrá í dag voru tvö svigmót, fyrir og eftir hádegi.
Hér að neðan eru myndir frá verðlaunaafhendingunni að móti loknu. Veitt voru verðlaun í Karla- og Kvennaflokki sem og fyrir U-18 KK og U-18 KVK.
Verðlaunaafhending fyrir fyrra svigmót dagsins

Kvennaflokkur
1. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)
2. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)
3. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (ÁRM)

Flokkur U18-KVK
1. Rakel Lilja Sigurðardóttir (UÍA)
2. Linda Mjöll Guðmundsdóttir (ÁRM)
3. Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir (UÍA)

Karlaflokkur
1. Bjarni Þór Hauksson (VÍK)
2. Gauti Guðmundsson (KR)
3. Carl Ottosson (Utan félags)

Flokkur U18-KK
1. Arnór Alex Arnórsson (KR)
2. Óskar Valdimar Sveinsson (DAL)
3. Hrafnkell Gauti Brjánsson (ÁRM)
Verðlaunaafhending fyrir seinna svigmót dagsins

Kvennaflokkur
1. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)
2. Eyrún Erla Gestsdóttir (VÍK)
3. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (ÁRM)

Flokkur U18-KVK
1. Hrefna Lára Zoega (UÍA)
2. Viktoría Björk Harðardóttir (BBL)
3. Katrín María Jónsdóttir (UÍA)

Karlaflokkur
1. Matthías Kristinsson (SÓ)
2. Jón Erik Sigurðsson (Fram)
3. Nick Zondag (Utan félags)

Flokkur U18-KK
1. Óskar Valdimar Sveinsson (DAL)
2. Herman Soerensen (Utan félags)
3. Hrafnkell Gauti Brjánsson (ÁRM)
Úrslit tímatöku beggja móta má nálgast á heimasíðu FIS sem og í Mótakerfi SKÍ
Skíðafélag Akureyrar þakkar keppendum fyrir daginn og óskar sigurvegurum til hamingju. Við viljum einnig koma til skila þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg í dag – mikil samstaða ríkti meðal manna um að láta daginn ganga vel – óháð félagi. Slíkt er ómetanlegt.










