600 þúsund söfnuðust fyrir Úlfar

Í gærkvöldi voru haldnir styrktartónleikar í Samkomuhúsinu á Akureyri fyrir Úlfar Baldvin Kjartansson sem er 6 ára drengur frá Dalvík sem greindist nýlega með heilaæxli og er nú í Svíþjóð í meðferð. Á tónleikunum söfnuðust samtals 568 þúsund krónur og nú í morgunsárið hafa samtals safnast um 600 þúsund krónur 14 listamenn komu fram á tónleikunum og sungin voru 18 lög. Skipuleggjendur segja að tónleikarnir hafi gengið frábærlega.

Úlfar Baldvin Kjartansson er 6 ára Dalvíkingur. Mamma hans Nanna Hinriksdóttir er sjálfstætt starfandi förðunar og naglafræðingur og hefur unnið fyrir Leikfélag Akureyrar og pabbi hans Kjartan Hjaltason vinnur fyrir Samherja.  Úlfar á 8 ára gamla systur sem heitir Melkorka Máney Kjartansdóttir. Úlfar greindist með óskurðtækt æxli í heilastofni í febrúar og er nú í Svíþjóð í geisla og lyfjameðferð. 

Reikningsupplýsingar fyrir styrktarreikninginn eru

Rn 0123-15-247041
kt 250590-2109

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!