MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

5,6 milljónir söfnuðust á kvennakvöldi Þórs og KA

Eftir María Hjelm·
kvennakvold2026-styrkur-sida
Mynd: KA· kaffid.is

Ár hvert fer fram kvennakvöld Þórs og KA. Í ár afhenti kvennakvöldsnefndin kvennaliðum félaganna veglega styrki á leik Þórs/KA og ÍBV um helgina. Það söfnuðust 5,6 milljónir á kvöldinu og hver deild fékk styrk að upphæð 1,4 milljónir. Þetta kemur fram á vef KA.

Að Kvennakvöldinu standa kvennaliðin fjögur í boltaíþróttunum, knattspyrnulið Þórs/KA, handknattleikslið KA/Þórs, körfuknattleikslið Þórs og blaklið KA. Nefndarkonur Kvennakvöldsins afhentu fulltrúum þessara liða afraksturinn af kvöldinu.

Markmið úthlutunar er að efla kvennastarf, styrkja aðstöðu, skapa tækifæri og tryggja að konur og stúlkur í íþróttum hafi aðgang að öflugum og faglegum umhverfum.

Á myndinni frá vinstri eru fulltrúar frá deildunum sem tóku á móti styrkjunum ásamt fulltrúum frá Kvennakvöldsnefndinni, Eva Björk Halldórsdóttir kvennakvöldsnefnd, Kári Þorleifsson fyrir körfuknattleiksdeild Þórs, Bergrós Guðmundsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir fyrir handknattleiksdeild KA/Þór, Auður Pétursdóttir og Kara Árnadóttir frá blakdeild KA, Dóra Sif Sigtryggsdóttir frá knattspyrnudeild Þór/KA og Linda Guðmundsdóttir frá Kvennakvöldsnefnd.

„Við þetta tilefni vill Kvennakvöldsnefndin þakka öllum þeim sem koma að kvöldinu, styrktaraðilum, sjálfboðaliðum og öllum þeim frábæru konum sem mættu á viðburðinn, fyrir að gera þetta kvöld ógleymanlegt og að styrkja allar þessar frábæru íþróttakonur sem skipa þessi lið,“ segir meðal annars í ávarpi frá nefndinni.

Kvennakvöldsnefndina skipa þær Linda Guðmundsdóttir, Eva Björk Halldórsdóttir og María Kristín Davíðsdóttir.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026