46 smit vegna Covid-19 hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram í nýjustu tölum á covid.is sem birtust klukkan 13.
Sjá einnig: Tveir í öndundarvél á SAk vegna covid-19
Þrjú ný smit hafa því bæst við frá því í gær. Samkvæmt tölum frá Aðgerðarstjórn almannavarna á Norðurlandi eystra. eru 36 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 í augnablikinu.
176 einstaklingar eru í sóttkví vegna Covid-19 á Norðurlandi eystra og fjölgar því um þrjá einstaklinga í sóttkví frá tölum gærdagsins.
Á landinu öllu hafa verið staðfest 1616 smit en 633 hafa náð bata.