40 ára afmæli Sumartónleika í Akureyrarkirkju

Tónleikaröðin Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru haldnir í 40. sinn í sumar. Opnunartónleikar afmælissumarsins verða haldnir sunnudaginn 5. júlí kl. 17 í Akureyrarkirkju. Margrét Árnadóttir sópran og Páll Barna Szabó píanóleikari flytja undurfallega og skemmtilega ljóðasöngva eftir m.a. Clöru Schumann og Jórunni Viðar. Einnig frumflytja þau nýtt sönglag eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur, sem pantað var í afmælisgjöf til hátíðarinnar og tónleikagesta. En nýtt tónverk verður frumflutt á öllum Sumartónleikum í sumar – í tilefni afmælis. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og frjáls framlög til hátíðarinnar vel þegin.
Björn Steinar Sólbergsson og Hrefna Harðardóttir áttu frumkvæði að stofunun Sumartónleika í Akureyrarkirkju í júlí 1987 og héldu utan um hátíðina um langt skeið. Björn Steinar leikur einmitt á orgel annan sunnudaginn í júlí í tilefni afmælisins, en Sumartónleikar eru haldnir í Akureyrarkirkju alla sunnudaga í júlí.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










