Eitt nýtt smit vegna Covid-19 greindist á Norðurlandi eystra í gær samkvæmt tölum sem birtar voru á covid.is klukkan 11.
Fyrir voru þrjú virk smit í umdæminu og því virk smit á svæðinu orðin fjögur samtals. Ekki hefur verið gefið upp nákvæm staðsetning á fjórða smitinu en smitin þrjú sem voru fyrir voru öll á Akureyri.
107 eru í sóttkví á Norðurlandi eystra. Alls greindust 39 ný kórónuveirusmit innanlands í gær.
UMMÆLI