„30 þúsund íbúar skynsamlegur fjöldi til að halda úti því þjónustustigi sem við viljum“

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, er Akureyringur vikunnar á Facebook-síðu Akureyrarbæjar. Berglind segir þar að hún sé með skýra framtíðarsýn fyrir bæinn og vilji fyrst og fremst að Akureyri haldi áfram að stækka.
„Að við löðum til okkar fólk og fyrirtæki og fjölbreytt tækifæri í atvinnu. Ég held að 30 þúsund íbúar væri skynsamlegur fjöldi til að halda úti því þjónustustigi sem við viljum en svo er líka mikilvægt að sveitarfélögin í kringum okkur séu sterk. Það skiptir okkur líka máli,“ segir Berglind.
Hún segist kunna vel við bæjarstjórastarfið hingað til. „Ég fæ þessa spurningu mjög gjarnan en er ekki alveg búin að ákveða svarið. Mér líst mjög vel á verkefnið, meirihlutann og það sem er í gangi hjá sveitarfélaginu en á sama tíma vil ég ekki að svarið sé of léttvægt. Þetta er risastórt hlutverk og mikil ábyrgð en með þéttu teymi og góðu skipulagi gengur þetta vel.“
Nánar er rætt við Berglindi á Facebook-síðu Akureyrarbæjar.
Tengdar greinar
Uppfært: 12. september 2026










