Nýlega unnu nemendur í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri að könnun og fræðslu um Neyðarlínuna á leikskólum. Niðurstöður könnunar leiddu í ljós að 30% barna á aldrinum 3 til 12 ára kunna ekki að hringja í Neyðarlínuna 112.
51% kann ekki að hringja úr læstum farsíma
Þá kom einnig í ljós að 61% foreldra eru ekki með heimasíma og að 51% barna kynnu ekki að hringja í 112 úr læstum farsíma. Önnur atriði sem vöktu athygli voru að um fjórðungur barna hafði ekki fengið neina fræðslu um 112 og 34% foreldra höfðu ekki farið yfir hlutverk Neyðarlínu 112 með börnum sínum.
,,Börn hafa bjargað mannslífum, það hefur sýnt sig áður“
Könnunin var hluti af verkefni í náminu og fór fram á netinu. „Þetta var dreifikönnun á netinu og við fengum 880 svör. Hún var ekki hávísindaleg en hún gefur vísbendingar,“ segir Olga Kristín Jóhannesdóttir lögreglufræðinemi í samtali við mbl.is. Upphaflega átti verkefnið að vera könnun og fræðsla um Neyðarlínu 112 á leikskóla en nemunum þótti það ekki nóg. Þeir ákváðu því að búa til dreifirit og reyna koma boðskapnum sem víðast
„Okkur fannst við þurfa fara með boðskapinn lengra og vekja athygli á þessum niðurstöðum því þetta eru ekki góðar tölur. Að börn séu svona illa upplýst getur verið hættulegt. Það er ekki algengt að börn séu ein á vettvangi en það kemur fyrir og börn hafa bjargað mannslífum, það hefur sýnt sig áður,“ segir Olga við mbl.is.
UMMÆLI