Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

27 kandídatar ljúka námi við Háskólann á Akureyri í dag

Eftir Ingólfur Stefánsson·
haskolinn
kaffid.is

Í dag, 15. október, brautskrást 27 kandídatar frá Háskólanum á Akureyri. Af þeim hafa 15 stundað nám við Háskólasetur Vestfjarða, þar sem boðið er upp á nám í haf- og strandsvæðastjórnun og sjávarbyggðafræði.

Kandídötum verður fagnað við Vetrarbrautskráningarathöfn Háskólans á Akureyri laugardaginn 13. febrúar 2027, ásamt þeim sem brautskrást þann dag.

„Kæru kandídatar, í dag ljúkið þið mikilvægum kafla og ný tækifæri taka við. Að baki þessum áfanga liggja ótal vinnustundir, metnaður og þrautseigja sem þið megið sannarlega vera stolt af. Þið takið nú með ykkur þekkingu og reynslu sem mun nýtast ykkur á þeim leiðum sem þið veljið í framtíðinni. Við í Háskólanum á Akureyri erum afar stolt af ykkur og óskum ykkur innilega til hamingju með árangurinn. Þótt við komum ekki saman til hátíðlegrar athafnar í dag er tilefnið sannarlega þess virði að fagna. Ég vona að þið njótið dagsins, hvar sem þið eruð stödd, og hlakka til að fagna þessum tímamótum með ykkur í febrúar,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.

Nánar á Unak.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 15. október 2026